8 Vikur Eftir Fæðingu -

fyrir nýbakaðar mæður

8 vikna Grunn Æfingaprógram eftir fæðingu




8 vikna æfingaprógram eftir fæðingu þar sem áhersla er lögð á að byggja upp styrk í kvið og grindarbotni, vinna með samhæfingu og jafnvægi sem getur raskast á meðgöngu, bæta líkamsstöðu og losa um þreytu og stífleika í efri líkamanum.

Þú vinnur þig markvisst í gegnum æfingar eftir fæðingu og lærir að undirbúa líkamann og grindarbotninn fyrir stigvaxandi álag – þar á meðal hopp, hlaup og þyngri styrktarþjálfun.


⭐️ Prógrammið inniheldur átta vikur af æfingum eftir fæðingu með þremur æfingadögum í hverri viku. Æfingarnar eru stuttar og viðráðanlegar fyrir fyrstu vikurnar og flestar getur þú gert heima á stofugólfinu með litlum búnaði. Myndbönd og útskýringar fylgja öllum æfingum svo þú veist nákvæmlega hvað þú átt að gera.. Að fylgja prógraminu er ekki mikil fyrirhöfn


Einnig fylgir tékklisti fyrir áframhaldandi þjálfun eftir fæðingu, þar sem farið er yfir stigvaxandi endurkomu í æfingar eins og hlaup, hopp, burpees, uppsetur og upphífingar. Að auki færðu þriggja daga framhaldsæfingaplan sem hægt er að nýta bæði heima og í ræktinni.



💡 Prógrammið inniheldur ítarlega fræðslu um bataferlið eftir fæðingu, þar á meðal ráð fyrir fyrstu vikurnar eftir keisarafæðingu, fræðslu um hreyfingu og æfingar eftir keisara, örvef og örnudd, rifur eftir fæðingu og fleira. Þessir þættir hafa verið yfirfarnir af ljósmóður.


🫐 Næringarfræðsla sem að inniheldur 7 kafla af upplýsingum sem að hægt er að treysta, unnið af löggiltum næringarfræðing. Ráðleggingar varðandi næringu eftir fæðingu + meðfram bjróstagjöf, vítamín, fæðubót + önnur efni, svör við algengum spurningum ásamt 22 einföldum uppskriftum! 🥙



ONLINE MÖMMUÞJÁLFUN-GRUNNUR

Mælt með af ljósmæðrum og sjúkraþjálfurum 💗

yfir 280 mæður hafa nýtt sér prógramið í bataferlinu

____________________________









🤸‍♀️ Áhöld: ekki nauðsynleg - en ég mæli sterklega með því að eiga 1x pilates bolta, 1x langt band og 1x handlóð til þess að fá sem mest út úr prógraminu.

Prógramið hentar fyrir allar konur sem að eru að taka sín fyrstu skref í hreyfingu eftir fæðingu - og eru að byrja frá grunni.

Prógramið hentar bæði eftir legganga fæðingu og keisara fæðingu.

BERGLIND



SONJA BJÖRK



JÓNA MARGRÉT



SVONA LÝTUR PRÓGRAMIÐ ÚT



  Velkomin
Available in days
days after you enroll
  Legganga fæðing
Available in days
days after you enroll
  Keisarafæðing
Available in days
days after you enroll
  Fræðsla
Available in days
days after you enroll
  Næringarfræðsla
Available in days
days after you enroll
  MOBILITY & TEYGJUR
Available in days
days after you enroll
  Vika 1 - 3: GRUNNUR
Available in days
days after you enroll
  Vika 4 - 6: STIGNUN
Available in days
days after you enroll
  Vika 7 - 8: STYRKUR
Available in days
days after you enroll
  AUKA
Available in days
days after you enroll

KLIKKAÐU Á MYNDBANDIÐ TIL AÐ SJÁ SÝNISHORN


LILJA RÚN




DAGBJÖRT INGVARSDÓTTIR





MARÍA SKAGFJÖRÐ


UM MIG



Hæ! 🌸  Ég heiti Tinna Rún Svansdóttir - þjálfari, tveggja barna móðir og höfundur þessa prógrams.


Prógramið byggir á þeirri menntun sem ég hef sótt mér í þjálfun kvenna eftir barnsburð og minni eigin reynslu eftir keisara og leggangafæðingu.


Markmið mitt er að hjálpa konum að finna öryggi til þess að meta eigið líkamsástand eftir fæðingu og treysta á líkamann sinn - og gera þetta tímabil aðeins minna yfirþyrmandi, en það er í nægu að snúast með lítið barn - við skulum ekki láta hreyfinguna verða kvíðavaldandi ofan á það.


Menntun og réttindi:

  • ÍAK Einkaþjálfari (2014)
  • NASM Fitness Instructor Level 2 (2016)
  • NASM Pregnancy & Postnatal Exercise Specialist Level 3 (2019)
  • Pregnancy and Postpartum Athleticism Coach – Brianna Battles (2023)
  • Core Connection Worskhop - Jeesie Mundell (2024)
  • Revisiting Pelvic Floor Exercise - Generating the greatest impact for your patients - Anthony Lo & Dr. Monika Leitner (2026)