Hreyfing á Meðgöngu - Vika 25 - 29



Æfingaprógram fyrir 25.–29. viku meðgöngu sem byggir áfram á fyrri hluta prógramsins, en æfingarnar þróast og aðlagast að stækkandi kúlu og þeim líkamlegu breytingum sem eiga sér stað þegar líður á meðgönguna.

Áhersla er lögð á örugga og markvissa hreyfingu á meðgöngu, styrktarþjálfun, hreyfanleika og að halda líkamanum sterkum samhliða breytingunum sem eiga sér stað.


Prógrammið inniheldur 4 æfingadaga, mobility-æfingar, leidda tíma, teygjur og slökun fyrir grindarbotn. Öllum æfingum fylgja myndbönd með skýrum útskýringum, ásamt aðlögunum og öðrum æfingamöguleikum ef ákveðin æfing hentar þér ekki.


💡 Þú færð einnig áframhaldandi fræðslu um hreyfingu og æfingar á meðgöngu, ásamt myndböndum sem eiga sérstaklega við þetta stig meðgöngunnar.


Þjálfarinn sýnir sjálf allar æfingarnar 25–29 vikur á leið, svo þú sérð hvernig hægt er að aðlaga styrktarþjálfun og aðrar æfingar að stækkandi kúlu eftir því sem líður á meðgönguna.



UMMÆLI


“Ég hef verið að æfa hjá Tinnu alla meðgönguna. Prógrömmin eru fjölbreytt og skemmtileg og fær hún mín bestu meðmæli.

Þrátt fyrir að hafa verið að lyfta í mörg ár þá lærði ég eitthvað nýtt með hverju prógrammi. Það sem stóð mest upp úr og hjálpaði grindinni minni mest voru liðleikaæfingar og teygjurnar sem ég gerði í upphafi og enda á hverri æfingu.”


Hlakka svo til að byrja á postpartum prógramminu eftir fæðingu!

DILJÁ HEIMISD. - Á von á sínu 2.barni