Hreyfing á Meðgöngu - Vika 30 - 34



Æfingaprógram fyrir 30.–34. viku meðgöngu með fjölbreyttum og markvissum æfingum.

Áhersla er lögð á styrk, hreyfanleika og að styðja við líkamann og þær breytingar sem eiga sér stað eftir því sem líður á meðgönguna.

Prógrammið inniheldur 4 æfingadaga með styrktarþjálfun, teygjur, mobility-æfingar og leidda mobility tíma. Þú færð einnig æfingar sem hjálpa þér að vinna með grindarbotninn á meðgöngu, með áherslu á bæði virkni og slökun.

Öllum meðgönguæfingum fylgja myndbönd með skýrum útskýringum og sýnt er hvernig hægt er að aðlaga æfingar á meðgöngu eftir líðan, getu og stækkandi kúlu. Þú færð einnig aðra æfingamöguleika ef ákveðin hreyfing hentar þér ekki.

Þjálfarinn sýnir sjálf allar æfingarnar komin 30-34 vikur á leið, svo þú getur fylgt æfingunum og séð hvernig styrktarþjálfun og hreyfing á meðgöngu er aðlöguð að þessu stigi meðgöngunnar.




UMMÆLI


"Ég er mikil íþróttakona og æfi vel þegar ég er ekki ólétt. Ég hef lært allskonar eins og hvernig á að minnka álag á kvið með því að gera æfingar á hnjám eða sitjandi. Næ að keyra mjög vel á æfingum og ekki fundið fyrir neinum verkjum eða extra þreytu.


Ég fór erlendis og þá var gengið mikið og fann ég td. fyrir í grindinni og mjóbaki. Tók því Mobility + Teygju kaflann einn morguninn sem gerði svo mikið fyrir mig!! Varð mun betri yfir daginn og daginn eftir var verkurinn farinn.


Prógramið gefur mér sjálfstraust og öryggi að æfa þar sem allar æfingar eru vel útskýrðar og hnitmiðaðar. Ég get líka skalað æfingar eftir dagsformi og æft á mínum hraða."


FANNEY GUÐMUNDSDÓTTIR - Íþróttaálfur sem á von á sínu 2 barni