Hreyfing á Meðgöngu - Vika 35 - 39
Æfingaprógram fyrir 35.–39. viku meðgöngu og lokasprettinn á meðgöngu.
Prógrammið byggir áfram á fyrri plönum, en æfingarnar þróast og aðlagast að stækkandi kúlu, breyttri líðan og þeim líkamlegu breytingum sem verða þegar fæðingin nálgast. Á þessu stigi er lögð aukin áhersla á að aðlaga hreyfingu og æfingar á meðgöngu að dagsforminu, ásamt styrk, hreyfanleika, öndun og slökun fyrir grindarbotninn.
Þú færð einnig fræðslu og fræðslumyndbönd sem eiga sérstaklega við þriðja þriðjung meðgöngu og undirbúning fyrir fæðingu.
Prógrammið inniheldur 4 æfingadaga, mobility-æfingar, leidda mobility tíma og teygjur. Öllum æfingum fylgja myndbönd með skýrum útskýringum, aðlögunum og öðrum æfingamöguleikum ef eitthvað hentar þér ekki.
Þetta prógram inniheldur einnig yfir 30 mjúkar æfingar sem að er æðislegt að grípa í, sérstaklega á lokasprettinum - svokallað birth prep.
Þjálfarinn sýnir sjálf æfingarnar komin 35–39 vikur á leið, svo þú sérð hvernig hægt er að aðlaga meðgönguæfingar á þriðja þriðjungi að breyttum líkama og líðan